Rafmiðlun.is » Verkefni

Verkefni síðustu ár:

 

  • Alcan á Íslandi – háspennuvirki og kæliband
  • Alþingi .Austurstræti  8 – 10 – allar rafmagns-, síma- og tölvulagnir
  • Baader í Kópavogi – allar raflagnir
  • Bónus – 20 verslanir
  • Borgarbókasafnið í Árbæ-allar raflagnir
  • Eimskip – vöruhótel – tölvulagnir og ljósleiðarakerfi
  • Exton Kastljós – Allar raflagnir
  • Fáskrúðsfjarðargöng – Raflagnir og skápasmíði
  • Ferskir kjúklingar – aðaltafla 2500 A og allar dreifitöflur
  • Fiskimjölsverksmiðja og frysting á Seyðisfirði – endurnýjun raflagna
  • Flugstöð Leifs Eiríkssonar Suðurbygging – hússtjórnarkerfi
  • Flugstöð Leifs Eiríkssonar Suðurbygging – aðaltafla 2500 A og allar dreifitöflur
  • Flugstöð Leifs Eiríkssonar – Stækkun austur-vestur
  • Flugstöð Leifs Eiríkssonar – Hlaðmenn-C4-Sýslumaður
  • Flugstöð Leifs Eiríkssonar – Fríhafnarverslun
  • Hagkaup í Smáratorgi – allar raflagnir
  • Hótel Esja - hússtjórnarkerfi
  • Hreinsi og Dælustöð við Mýrargötu í Reykjavík – allar raflagnir
  • Hreinsistöð við Klettagarða í Reykjavík – 2x2000A aðaltöflur ásamt stýritöflum
  • IKEA Garðabæ – allar raflagnir
  • IKEA Reykjavík – allar raflagnir
  • IMG Gallup, Laugavegi 168 – endurnýjun rafmagns-, síma- og tölvulagna
  • ÍSAL – 20 KV háspennudreifistöð
  • ÍSAL – sísteypivél allar raflagnir
  • ÍSAL – sjálfvirknibúnaður í steypuskála
  • ÍSAL – töflusmíði og stýringar fyrir loftþjöppustöð 4
  • ÍSAL – viðvörunar- og hljóðkerfi
  • Ísfell – allar raflagnir.
  • Íslensk erfðargreining – aðaltafla 2500 A og allar dreifitöflur
  • Íslensk útivist, Kringlunni – allar raflagnir
  • Járnblendiverksmiðjan Grundartanga / ofn 3 – allar raflagnir
  • Jóhann Ólafsson og Co – allar raflagnir
  • Kassagerð Reykjavíkur – ýmis verkefni
  • Kringlan – Sameign og Verslanir
  • Kvikmyndasafn í Hafnarfirði – allar raflagnir
  • Landssíminn  – Þjónustusamningur – Allar raflagnir
  • Landsspítalinn – ný aðaltafla (4000 amp) og forritun
  • Landsvirkjun – 630 A töflur í gasaflsstöð í Straumsvík
  • Landsvirkjun – Vatnsfell
  • Málning ehf – allar raflagnir
  • Morgunblaðið – prentsmiðja við Hádegismóa
  • Natan & Olsen - raflagnir við stækkun á lager og frystikerfi
  • Norðurál – raflögn fyrir stýri- og flutningskerfi
  • Norðurál – töflusmíði og  allar raflagnir í stækkun Fasi 2-3-4-5.
  • Orkuveita Reykjavíkur – Höfuðstöðvar Allar raflagnir
  • Orkuveita Reykjavíkur – 2000 A töflur í spennistöðvar
  • Orkuveita Reykjavíkur – borholur , stýriskápar og allar raflagnir
  • Orkuveita Reykjavíkur – stýriskápar í Heiðmörk vatnsöflun
  • Radisson SAS Hótel Ísland  – móttaka, endurnýjun raflagna
  • Radisson SAS Hótel Ísland – allar raflagnir
  • Radisson SAS Hótel Ísland – brunakerfi
  • Radisson SAS Hótel Saga – endurnýjun raflagna
  • Ríkislögreglustjórinn – allar raflagnir
  • Rúmfatalagerinn – raflagnir í öllum verslunum
  • Samskip Vöruhótel – Allar raflagnir
  • Sementsverksmiðjan Akranesi – stýrislagnir og töflusmíði á hússjórnarkerfi
  • SÍF Fornubúðum – allar raflagnir og 1250 A  aðaltafla
  • Sjúkrahús Reykjavíkur / Landakot – endurnýjun allra raflagna
  • Smáralind, verslunarmiðstöð– töflusmíði 1250-2500 A  ásamt dreifitöflum og raflögnum í sameign
  • Sparisjóður Vélstjóra – raf og tölvulagnir í öllum bönkum
  • Teiknistofa Halldórs Guðmundssonar (THG) – Allar raflagnir
  • Umslag / SKÝRR – endurnýjun raflagna
  • Útlendingaeftirlitið – nýjar skrifstofur Skógarhlíð
  • Verslunarmiðstöðin Smáratorgi – smíði aðaltöflu (1250 amp)
  • Þyrping – Ævintýraland Kringlunni – allar raflagnir
  • VSÓ – Allar raflagnir
  • World Class og Reykjavíkurborg í Laugardal – töflusmíði og raflagnir
  • 365 Skaftahlíð – Allar raflagnir
  • Skápasmíði fyrir Argentínu Alstom
  • Hreinsivirki í Noregi, Sunndal Alstom
  • Hreinsivirki í Noregi, Årdal Alstom
  • Hellisheiðarvirkjun Orkuveita Reykjavíkur
  • Holtagarðar, Hagkaup og fleiri verslanir
  • R.Sigumundsson – Allar raflagnir
  • Atlantsskip Gámavöllur í Hafnarfirði
  • Skápasmíði fyrir Svartsengi Orkuver 6,  Hitaveita Suðurnesja
  • Klettagarðar 22 – Allar raflagnir
  • Háskólinn í Reykjavík – Allar raflagnir
  • Rjukan í Noregi – Endurnýjun á vatnsaflvirkjun
  • Ilussat á Grænlandi – Vatnsaflvirkjun
  • Osló í Noregi – Breytingar á skrifstofubyggingu í íbúðablokk
Verkefni í gangi og framundan:

Vatnsaflvirkjun í Rjukan – Noregi 2011-2015
Vatnsaflvirkjun í Ilussat – Grænlandi 2012-2013
Bónus – ný verslun á Selfossi
Hagkaup – ný verslun á Selfossi
Skemmtigarðurinn í Smáralind  “Vetrargarðurinn”
Norðurál– afsog frá span-ofnum
Elkem – skipt um allan rafbúnað í hafnarkrana
Elkem -  endurnýjun á afsogi frá ofnum
Elkem – lýsinguvið kæla á þaki
Líkamsræktarstöð í Holtagörðum 3800m2
Hótel Loftleiðir – breytingar á þingsölum
Iceland Express –-nýjar skrifstofur
Hellisheiðarvirkjun – ýmis smáverkefni
Hagkaup – ýmsar breytingar í verslunum
Reitir – ýmis smáverkefni
Rarik – smíði á dreifiskápum

Rjukan í Noregi.

Rafmiðlun hefur tekið að sér verkefni í Rjukan í Noregi þar sem unnið er fyrir norska verkfræðistofu, Goodtech sem sér um verkið. Verkefnið snýst um að skipta út raflögnum í nokkrum virkjunum í Rjukan dalnum og er áætlaður verktími árið 2011frá maí til september.

Vatnsaflsvirkjanirnar í Rjukan, hér má sjá ýmsar upplýsingar um virkjanirnar 5 í dalnum.

Þetta eru í allt 5 vatnsaflsvirkjanir sem eru í eigu Norsk Hydro. Í sumar verður aðeins unnið í einni virkjuninni sem heitir Såheim, en hinar heita Frøystul, Vemork, Moflåt og Mæl. Í Såheim verður skipt út allri 230V dreifingunni, 220 VDC dreifingu ásamt Háspennudreifingu.

Áætlað er að endurnýja í hinum virkjununum sumarin 2012 og 2013. Svo stendur hugsanlega til að fara í endurnýjun á stjórnkerfum virkjananna í framhaldinu.

Í Rjukan dalnum sem er í Telemark var byrjað að virkju upp úr aldamótum 18-1900. Vatnsrennslið kemur úr vatni fyrir ofan dalinn sem heitir Møsvatn, sem er að hluta til í Hardangervidda þjóðgarðinum, en ár úr fleiri vötnum bætast við á leiðinni niður dalinn. Sama vatnið er nýtt niður allan dalinn og er heildar fallhæð 724m. Framleiðsla virkjananna er samtals 493MW.

Vemork stöðin verður endurnýjuð sumarið 2012 en hún er inni í fjallinu. Gamla Vemork stöðin sem nú er safn er við hliðina á en hún kom mikið við sögu í síðari heimsstyrjöldinni þar sem þjóðverjar voru að framleiða svokallað þungavatn (heavy water) sem notað er í framleiðslu á kjarnorku. Norska heimavarnarliðið vann skemmdarverk á stöðinni til að koma í veg fyrir að þjóðverjar gætu ný framleiðsluna í kapphlaupinu um kjarnorkusprengjuna.

Såheim stöðin.

Rjukan er lítill bær sem byggðist upp þegar byrjað var að virkja í dalnum. Þar hefur verið ýmiss iðnaður en í dag er byggir bærinn afkomu sína mikið til á ferðamennsku. Mikil náttúrufegurð er allt í kring og minnir landslagið óneitanlega á alpana þar sem bærinn er umkringdur háum fjöllum, en varla sést til sólar á dimmustu vetrarmánuðunum. Á veturna er skíðamennska og ísklifur það sem dregur ferðamenn að, en Rjukan er þekkt í ísklifurheiminum og talið einna besta svæði í evrópu. Á sumrin er vinsælt að fara í göngu og hjólaferðir um Hardangervidda þjóðgarðinn  en fjölmargir kofar (hytter) eru á svæðinu. Vinsælt er að fara á Gaustatoppen sem talið er fegursta fjall Noregs 1.883 mys og sést um 1/6 Noregs af toppnum (það geta starfsmenn Rafmiðlunar staðfest). Einnig er vinsælt að veiða í vötnunum allt í kring og hægt er að ferðast með ferjum á þeim stærstu.

Rjukan með Gaustatoppen í baksýn.

Starfmenn Rafmiðlunar gista á gistiheimili í bænum og er aðstaðan þar með ágætum. Í frítímum fara menn mikið í gönguferðir um stórbrotna náttúruna eða keyra um sveitirnar. Sumir hafa fengið sér kort í líkamsræktarstöðinni en einnig er flott sundlaug á staðnum. Vinnutími er fjórar vikur í senn og tvær í frí, en fjöldi starfsmanna verður á bilinu 15 til 20 manns, eftir því hvernig verkefnið þróast og stefnt er á að ljúka endurnýjum í Såheim stöðinni í lok september.

Rafmiðlun - Ögurhvarfi 8 - 203 Kópavogur - Sími 540 3500 - Netfang rafmidlun (hja) rafmidlun. is