Rjukan í Noregi.
Rafmiðlun hefur tekið að sér verkefni í Rjukan í Noregi þar sem unnið er fyrir norska verkfræðistofu, Goodtech sem sér um verkið. Verkefnið snýst um að skipta út raflögnum í nokkrum virkjunum í Rjukan dalnum og er áætlaður verktími árið 2011frá maí til september.
Vatnsaflsvirkjanirnar í Rjukan, hér má sjá ýmsar upplýsingar um virkjanirnar 5 í dalnum.
Þetta eru í allt 5 vatnsaflsvirkjanir sem eru í eigu Norsk Hydro. Í sumar verður aðeins unnið í einni virkjuninni sem heitir Såheim, en hinar heita Frøystul, Vemork, Moflåt og Mæl. Í Såheim verður skipt út allri 230V dreifingunni, 220 VDC dreifingu ásamt Háspennudreifingu.
Áætlað er að endurnýja í hinum virkjununum sumarin 2012 og 2013. Svo stendur hugsanlega til að fara í endurnýjun á stjórnkerfum virkjananna í framhaldinu.
Í Rjukan dalnum sem er í Telemark var byrjað að virkju upp úr aldamótum 18-1900. Vatnsrennslið kemur úr vatni fyrir ofan dalinn sem heitir Møsvatn, sem er að hluta til í Hardangervidda þjóðgarðinum, en ár úr fleiri vötnum bætast við á leiðinni niður dalinn. Sama vatnið er nýtt niður allan dalinn og er heildar fallhæð 724m. Framleiðsla virkjananna er samtals 493MW.
Vemork stöðin verður endurnýjuð sumarið 2012 en hún er inni í fjallinu. Gamla Vemork stöðin sem nú er safn er við hliðina á en hún kom mikið við sögu í síðari heimsstyrjöldinni þar sem þjóðverjar voru að framleiða svokallað þungavatn (heavy water) sem notað er í framleiðslu á kjarnorku. Norska heimavarnarliðið vann skemmdarverk á stöðinni til að koma í veg fyrir að þjóðverjar gætu ný framleiðsluna í kapphlaupinu um kjarnorkusprengjuna.
Såheim stöðin.
Rjukan er lítill bær sem byggðist upp þegar byrjað var að virkja í dalnum. Þar hefur verið ýmiss iðnaður en í dag er byggir bærinn afkomu sína mikið til á ferðamennsku. Mikil náttúrufegurð er allt í kring og minnir landslagið óneitanlega á alpana þar sem bærinn er umkringdur háum fjöllum, en varla sést til sólar á dimmustu vetrarmánuðunum. Á veturna er skíðamennska og ísklifur það sem dregur ferðamenn að, en Rjukan er þekkt í ísklifurheiminum og talið einna besta svæði í evrópu. Á sumrin er vinsælt að fara í göngu og hjólaferðir um Hardangervidda þjóðgarðinn en fjölmargir kofar (hytter) eru á svæðinu. Vinsælt er að fara á Gaustatoppen sem talið er fegursta fjall Noregs 1.883 mys og sést um 1/6 Noregs af toppnum (það geta starfsmenn Rafmiðlunar staðfest). Einnig er vinsælt að veiða í vötnunum allt í kring og hægt er að ferðast með ferjum á þeim stærstu.
Rjukan með Gaustatoppen í baksýn.
Starfmenn Rafmiðlunar gista á gistiheimili í bænum og er aðstaðan þar með ágætum. Í frítímum fara menn mikið í gönguferðir um stórbrotna náttúruna eða keyra um sveitirnar. Sumir hafa fengið sér kort í líkamsræktarstöðinni en einnig er flott sundlaug á staðnum. Vinnutími er fjórar vikur í senn og tvær í frí, en fjöldi starfsmanna verður á bilinu 15 til 20 manns, eftir því hvernig verkefnið þróast og stefnt er á að ljúka endurnýjum í Såheim stöðinni í lok september.



